Fullveldi í fyrirrúmi á Hólahátíð

9. ágúst 2018

Fullveldi í fyrirrúmi á Hólahátíð

Hólahátíð verður haldin á Hólum í Hjaltadal 11. til 12. ágúst. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með tónleikum, hátíðarsamkomum og hátíðarmessu.

„Hólahátíð er hugsuð sem hátíð fyrir allt kirkjufólk í Hólastifti sem nær frá Hrútafirði allt austur í Álftafjörð,” segir sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup á Hólum. „Það er mikilvægt fyrir kirkjuna að halda hátíðir sem sýna styrk hennar bæði menningarlega og trúarlega. Kirkjan er mjög víða afar stór hluti af lífi fólks og sérstaklega á landsbyggðinni þar sem gríðarlegur fjöldi fólks hlúir að kirkjum sínum og kirkjustarfi.”

Hólahátíðin er ávallt fjölsótt og kemur fólk alls staðar að af landinu í eins konar pílagrímaför, enda er gengin pílagrímaganga á laugardeginum eftir Hallgrímsveginum frá Gröf heim að Hólum. Hátíðin hefur alltaf eitthvert megintema og má nefna að árið 2016 var haldið upp á 350 ára afmæli útgáfu Pássíusálmanna með veglegri sýningu á passíusálmaútgáfum og árið 2017 var minnst 500 ára afmælis siðbótarinnar. Í ár verður 100 ára afmælis fullveldis Íslands minnst. Í því tilefni hafa fermingarbörnum úr nágrenninu verið boðið að semja 8-10 mínútna erindi sem ber yfirskriftina: Hvaða þýðingu hefur fullveldi Íslands fyrir þig?

Solveig Lára Guðmundsdóttir

Kvenskörungurinn á Hólum

Kammersveitin ReykjavíkBarokk mun frumflytja tón-leikhús sem fjallar um líf Halldóru Guðbrandsdóttur sem tók ung við búi á Hólum á 17. öld. En slíkt þótti ekki algengt á þeim tíma.

„Halldóra var mikill kvenskörungur. Hún missti móður sína ung og tók því við heimilinu og sá um föður sinn til dauðadags,“ segir sr. Solveig Lára. „Eftir að Guðbrandur biskup fékk heilablóðfall árið 1624 annaðist Halldóra bæði hann og sá um alla starfsemi á Hólum.“

Dagskrá:

Laugardagurinn 11. ágúst

Pílagrímaganga eftir Hallgrímsveginum frá Gröf á Höfðaströnd heim að Hólum. Lagt af stað frá Grafarkirkju kl. 9:00 og komið heim að Hólum um kl. 16:00.

Kl. 16:00 Endurnýjun skírnarinnar og altarisganga í Hóladómkirkju.

Kl. 17:00 Samkoma í Auðunarstofu: Hvaða þýðingu hefur fullveldi Íslands fyrir þig?

Kl. 19:00 Kvöldverður Undir Byrðunni.

Sunnudagurinn 12. ágúst

Kl. 11:00 Tónleikhúsið: Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur-1625- Tvær konur í flutningi ReykjavíkBarokk.

Kl. 14:00 Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir sóknarprestur á Fáskrúðsfirði predikar. : Kirkjukór Hóladómkirkju syngur.

Organisti Jóhann Bjarnason. Tónlist: ReykjavíkBarokk.

-Veislukaffi Undir Byrðunni.

Kl. 16:30 Hátíðasamkoma í Hóladómkirkju.

Ræðumaður Einar Kr. Guðfinnsson formaður 100 afmælisnefndar um fullveldi Íslands

Tónlist: ReykjavíkBarokk.

Kl. 20:00 Kvöldmessa í Grafarkirkju á Höfðaströnd.
Prestur sr. Úrsúla Árnadóttir.
  • Auglýsing

  • Viðburður

hateigskirkja.jpg - mynd

Samverustund syrgjenda á aðventunni

13. nóv. 2024
Árleg samverustund syrgjenda fer fram 28. nóvember n.k. kl 20:00 í Háteigskirkju.
kirkjanisaugl.jpg - mynd

Biskup Íslands með skrifstofu og opna viðtalstíma á Suðurlandi

12. nóv. 2024
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, ásamt biskupsritara verða með skrifstofu á Suðurlandi í lok vikunnar og komandi helgi. Boðið verður upp á viðtalstíma og opna fundi.
Heimspekinemar í Grensáskirkju ásamt presti og kennara

Nemendur sóttu messu í tengslum við heimspekiáfanga

08. nóv. 2024
...samstarf Verslunarskólans og Fossvogsprestakalls