Eldri borgarar fagna nýju ári
Á svölum og björtum sunnudegi, þeim 13. janúar, var guðsþjónusta í Langholtskirkju á vegum Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæmis hins eystra og þess vestra. Hún var vel sótt og sóknarpresturinn sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir prédikaði og þjónaði fyrir altari ásamt Þóreyju Dögg Jónsdóttur, djákna og framkvæmdastjóra Eldriborgararáðs. Organisti var Kristján Hrannar Pálsson. Kórinn Góðir grannar söng undir stjórn Egils Gunnarssonar en hann skipa fyrrum félagar úr kirkjukór Langholtskirkju. Þetta var ljómandi góð guðsþjónusta í alla staði; prédikunin prýðileg og umhugsunarverð.
Fjöldi manns sótti guðsþjónustuna og í lok hennar var boðið upp á hádegishressingu. Var ekki annað að sjá og heyra en að glatt væri á hjalla meðal eldri borgaranna sem og þeirra yngri er þar voru.
Að sögn Þóreyjar Daggar er þetta sjötta árið sem Eldriborgararáð hefur þetta fyrirkomulag á guðsþjónustum en það felst í því að heimsækja sóknarkirkjur og njóta þeirrar prestsþjónustu sem þær bjóða upp á. Um áratugaskeið voru þessar guðsþjónustur alveg sér og hafðar á virkum degi en síðan var ákveðið að tengja þær með beinum hætti við sunnudagsguðsþjónustur safnaðanna og viðhalda þar með þessari gömlu messuhefð eldri borgaranna en þó með breyttu sniði. Fulltrúar úr félögum eldri borgara í kirkjum prófastsdæmanna beggja sækja guðsþjónusturnar og vitaskuld sóknarfólk og ýmsir aðrir. Á hverju ári eru þrjár guðsþjónustur með þessum hætti. Þetta var áramótamessa Eldriborgararáðs og var nýju ári fagnað með von og bjartsýni að leiðarljósi.