8. apríl 2019
„Framtíðarsýn óskast“ – málfundur um samband ríkis og kirkju
Hvernig eiga samskipti ríkis og kirkju að vera nú á 21. öld? Á að skilja þar alveg á milli – eða eiga tengslin að vera óbreytt? Hvernig tengist þetta umræðu um trúfrelsi og réttindi fólks til ólíkra lífskoðana – og hvað með sögu og menningararf? Hvað með ræktun andlegs lífs?
Fimmtudaginn 11. Kl. 12 verður málfundur í röðinni „Framtíðarsýn óskast“ um samband ríkis og kirkju haldinn í safnaðarheimili Háteigskirkju. Málshefjendur eru dr. Hjalti Hugason prófessor í kirkjusögu og Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur.
Fundurinn er opinn áhugafólki en hægt er að kaupa súpu og brauð á staðnum.