Prestastefna í Áskirkju 30. apríl - 2. maí 2019
Prestastefna þjóðkirkjunnar hefst í dag með guðsþjónustu í Áskirkju klukkan sex. Hér fyrir neðan má sjá yfirskrift og dagskrá stefnunnar sem að þessu sinni fjallar að mestu um jafnréttismál.
„Hér er hvorki Gyðingur né annarrar þjóðar maður, þræll né frjáls maður, karl né kona.
Þið eruð öll eitt í Kristi Jesú“ (Gal. 3:28 )
Þriðjudagur 30. apríl
17:45 Prósessía frá Safnaðarheimili Áskirkju
18:00 Guðsþjónusta í Áskirkju. Prédikun séra Helga Soffía Konráðsdóttir, prófastur
18:50 Setning Prestastefnu í Áskirkju
19:40 Móttaka í Safnaðarheimili Áskirkju
Miðvikudagur 1. maí
08:30 Morgunbæn í Áskirkju. – Séra Guðrún Karls Helgudóttir
09:00 Biblíulestur í Áskirkju. Fjórir hópar
- Séra Bára Friðriksdóttir: 1. Mós. 1:27, 2. Mós. 3:14 (Fundaherbergi)
- Séra Sigurjón Árni Eyjólfsson: 4. Mós. 27:1-11 (Kirkjan)
- Séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir: Dóm. 4:4-5 (10), 5: 7, 31 (Safnaðarsalurinn Ás)
- Séra Þór Hauksson: 2. Mós. 15:20-21, Dóm. 5, Júd. 9, 1. Sam. 2:1-10 og Lk. 1:46-55 (Safnaðarsalurinn Dalur)
10:00 Fyrirlestur og umræður um intersex: Sólveig Rós, fræðslustýra Samtakanna ´78
12:00 Hádegismatur
13:00 Hlé á dagskrá Prestastefnu
Svigrúm til að taka þátt í samstöðufundi á degi verkalýðsins. Safnast saman á Hlemmi kl. 13. Gengið niður í miðbæ þar sem fundur hefst um kl. 14 og lýkur fyrir kl. 15
15:00 Kaffi
15:30 Kynning á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna: Harpa Júlíusdóttir staðgengill framkvæmdastjóra Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
16:00 Kynning á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar á sviði jafnréttismála, sbr. heimsmarkmið SÞ: Salóme Huld Garðarsdóttir, kennari og stjórnarmaður í HK
16:30 Kynning á starfi Lúterska heimssambandsins á sviði jafnréttismála: Séra Þuríður Björg Wiium Árnadóttir, stjórnarmaður í LH
17:00 Umræður
18:00 Kvöldbæn við þvottalaugarnar í Laugardal, séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir,
prestur Kvennakirkjunnar (bænastundin hefst í kirkjunni og lýkur við þvottalaugarnar)
20:00 Móttaka í biskupsgarði – léttur kvöldverður
Fimmtudagur 2. maí
08:30 Morgunbæn í Áskirkju, séra Leifur Ragnar Jónsson
09:00 Biblíulestur í Áskirkju. Þrír hópar.
- Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson, Dóm. 14:2, 10-18, 15:1-2a, 3, 6 (Safnaðarsalurinn Ás)
- Séra Jón Ómar Gunnarsson, 1. Kór. 16:19, Róm. 16:3-5a, Post. 18:13, 18-19, 26-28, 2. Tím. 4:19 (Safnaðarsalurinn Dalur)
- Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, draumar í Biblíunni (Kirkjan)
10:00 Miðnefnd og önnur mál
- Mótmælendakirkjur Evrópu, Leuenberg samkomulagið
- Málefni frá miðnefnd (sjá fundarsköp Prestastefnu 6. gr.)
12:00 Hádegismatur
13:00 Kynningar frá þjónustumiðstöð Biskupsstofu
- Kynning á þjónustumiðstöðinni - séra Sigfús Kristjánsson
- Umhverfismál – séra Halldór Reynisson
- Jafnréttismál – Brynja Dögg Guðmundsdóttir Briem og séra Hildur Björk Hörpudóttir
- Efnisveita – María Gunnarsdóttir og Magnea Sverrisdóttir, djákni
- Sunnudagaskólinn og Heimsmarkmiðin – Magnea Sverrisdóttir, djákni
- Fjölskyldukirkjan – séra Hildur Björk Hörpudóttir
- Skírnin umræður – séra Sigfús Kristjánsson
15:00 Kaffi
15:30 Messa og slit Prestastefnu. Biskup Íslands og formaður P.Í. þjóna fyrir altari
---
Miðnefnd:
Séra Sigríður Rún Tryggvadóttir, formaður, netfang: sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is
Séra Kjartan Jónsson
Séra Axel Árnason Njarðvík
Ritarar stefnunnar:
Séra Magnús Björn Björnsson
Séra Ólöf Margrét Snorradóttir
Séra Fritz Már Jörgensson