Kirkjuþing unga fólksins á umhverfisvænum nótum

27. maí 2019

Kirkjuþing unga fólksins á umhverfisvænum nótum

Kirkjuþing unga fólksins

Kirkjuþingi unga fólksins lauk um miðjan dag í gær. Það var vel heppnað, hressilegur andi sveif yfir þingheimi og umræður voru góðar.

Umhverfismál voru ofarlega í huga hinna ungu þingfulltrúa. Tvö mál er snerta umhverfið voru samþykkt. Hið fyrra var áskorun til hins almenna kirkjuþings um að það verði pappírslaust.

Það síðara er áskorun til kirkjulegra yfirvalda um að draga úr flugferðum starfsmanna og að kolefnisjafna þær ferðir sem farnar væru. Auk þess beinir unga fólkið því til kirkjuþings hins almenna og kirkjulegra stofnana að draga sem mest úr notkun plasts.

Alls voru tólf mál afgreidd á þinginu. Hér má lesa stutt yfirlit um þau:

1. Tillaga um breytingu á starfsreglum um þingsköp kirkjuþings nr.949/2009 sem kveður á um að kirkjuþing hið almenna verði pappírslaust fyrir 2020. Jafnframt verði dregið sem mest úr notkun plasts á öllum sviðum kirkjulegs starfs.

2. Samþykkt var ályktun sem kveður á um að kirkjuþing hið almenna streymi fundum sínum með hljóði og mynd. Upptökur verði svo aðgengilegar eftir þingið.

3. Samþykkt var tillaga um að prestar þjóðkirkjunnar, sem og biskup Íslands, vígslubiskup og prófastar, ættu ekki að vera opinberir embættismenn íslenska ríkisins.

4. Samþykkt var ályktun um að gerð verði krafa um að þeir prestar sem þjóna sem sóknarprestar skuli ljúka sérstöku námi i á vegum guðfræðideildar Háskóla Íslands. Yrði það á lengd við diplómanám með áherslu á sálgæslu og stjórnun. Meginröksemdin fyrir þessu er að sóknarprestum mun fækka með sameiningu prestakalla og verða þeir verkstjórar í prestateymum úti í prestaköllunum.

5. Samþykkt var tillaga um breytingu á starfsreglum kirkjuþings unga fólksins þar sem kjör tveggja ritara er lagt niður enda verði þingið tekið upp með hljóði og mynd.

6. Tillaga var samþykkt um að söfnuðum verði skylt sjá til þess að fræðsla á vegum Samtakanna 78 sem kallast „Fræðsla til fagstétta“, fari fram að minnsta kosti á tveggja ára fresti.

7. Kirkjuþing unga fólksins samþykkti áskorun til biskupsembættisins þess efnis að opnuð yrði æskulýðsmiðstöð. Langtímamarkmiðið yrði að allir gætu notið slíkrar miðstöðvar og því þyrfti að huga að landsbyggðinni sem og höfuðborgarsvæðinu hvað það snerti.

8. Ályktun um að ráðinn yrði æskulýðsprestur hjá biskupsembættinu var samþykkt. Skal hann meðal annars hafa yfirsýn yfir helgihald fyrir ungt fólk og fræða jafnvel um kirkjulegar athafnir eins og skírn og hjónavígslur. Æskulýðsprestur myndi vera talsmaður unga fólksins í kirkjunni og efla æskulýðsstarfsemi á landsvísu í samstarfi við sóknarpresta og prófasta.

9. Þá lýsti kirkjuþing unga fólksins ánægju sinni með yfirlýsingu sr. Kristjáns Björnssonar, vígslubiskups í Skálholti, sem birtist á kirkjan.is 14. maí s.l., þar sem meðal annars kom fram að kirkjan vilji standa með þolendum ofbeldis og taka alvarlega allar ásakanir um óviðeigandi eða ranga hegðun.

10. Samþykkt var ályktun þar sem skorað er á alla starfsmenn kirkjunnar að draga úr flugferðum. Fara aðeins í þær ferðir sem teljast nauðsynlegar. Jafnframt skuli kirkjan kolefnisjafna ferðir sínar með skógrækt á landsvæðum kirkjunnar.

11. Kirkjuþing unga fólksins hvetur sóknarnefndir landsins til þess að kjósa ungt fólk til setu í sóknarnefndum. Viðmiðið ætti að vera að í hverri sóknarnefnd sitji að minnsta kosti einn einstaklingur yngri en 30 ára ef möguleiki er fyrir hendi. Þá lýsti þingið ánægju sinni með þær sóknir sem leitast hafa við hafa ungt fólk í sóknarnefndum.

12. Kirkjuþing unga fólksins minnti á þingsályktun kirkjuþings 2017, mál nr. 7, þar sem miðað var við að ungt fólk, á aldrinum sextán til þrjátíu ára, skyldi vera að jafnaði minnst tuttugu hundraðshlutar þeirra innan hverrar skipulagsheildar þjóðkirkjunnar sem hverju sinni; tækju bindandi ákvarðanir, semdu áætlanir, skipuleggðu starfsemi og hefðu kosningarétt. Þing unga fólksins telur að þessari samþykkt hafi ekki verið fylgt nægilega vel eftir. Það leggur auk þess til að ákvæðið um 20% skuli ekki vera viðmið heldur regla.

  • Frétt

  • Fundur

  • Samstarf

  • Þing

hateigskirkja.jpg - mynd

Samverustund syrgjenda á aðventunni

13. nóv. 2024
Árleg samverustund syrgjenda fer fram 28. nóvember n.k. kl 20:00 í Háteigskirkju.
kirkjanisaugl.jpg - mynd

Biskup Íslands með skrifstofu og opna viðtalstíma á Suðurlandi

12. nóv. 2024
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, ásamt biskupsritara verða með skrifstofu á Suðurlandi í lok vikunnar og komandi helgi. Boðið verður upp á viðtalstíma og opna fundi.
Heimspekinemar í Grensáskirkju ásamt presti og kennara

Nemendur sóttu messu í tengslum við heimspekiáfanga

08. nóv. 2024
...samstarf Verslunarskólans og Fossvogsprestakalls