Simultaneo sönghópurinn
Simultaneo sönghópurinn frá Gdansk í Póllandi kemur og heimsækir Sumartónleika í Skálholti helgina 13.-14. júlí.
Á dagskrá helgarinnar eru m.a. pólsk barokktónlist, nýjar tónsmíðar, bæði pólskar sem og frá Eistlandi og Íslandi.
Simultaneo sérhæfa sig í flutningi gamallrar- og nútímatónlistar. Hópurinn einbeitir sér að því að finna líkindi milli þessara ólíku tónlista og nýta hann við flutninginn.
Simultaneo hafa komið fram víðsvegar á hátíðum tileinkuðum bæði gamalli og nýrri tónlist. Í ágúst munu þau taka þátt í alþjóðlegri vinnustofu í Helsinki undir stjórn Paul Hillier og sönghóp hans, Theatre of Voices.
Dagskrá:
Laugardagur 13. júlí
13:00 Karol Kisiel stjórnandi Simultaneo heldur fyrirlestur um Pólska tónlist í Skálholtsskóla.
14:00 Barokk frá Póllandi. Pólski sönghópurinn Simultaneo flytur barokktónlist frá Póllandi og nágrannalöndum. Stjórnandi Karol Kisiel.
16:00 Ný tónlist frá Póllandi. Sönghópurinn Simultaneo frá Gdansk flytja nýja tónlist frá heimalandinu og víðar. Stjórnandi Karol Kisiel.
Sunnudagur 14. júlí
14:00 Nýtt og gamalt frá Póllandi. Sönghópurinn Simultaneo flytja úrval af pólskri barokk- og samtímatónlist.