31. október 2019
Kirkjuþing 2019
Loftskreyting í Laugardælakirkju í Flóahreppi
Boðað hefur verið til kirkjuþings 2019 og verður það sett í Háteigskirkju, laugardaginn 2. nóvember 2019, kl. 9.00 en fyrsti fundur þess hefst kl. 13.00.
Þingstörf fara fram í hinum nýju húsakynnum Biskupsstofu að Katrínartúni 4, 3. hæð.
Í anda umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar verður þingið pappírslaust og verður öllum málum varpað upp á tvo stóra skjái sem eru í þingsalnum.
Forseti kirkjuþings er Drífa Hjartardóttir.
Hægt er að nálgast mál sem lögð verða fyrir þingið hér.Nánar verður sagt frá þingstörfum hér á kirkjan.is meðan á þinginu stendur.
Sjá nánar um kirkjuþing hér.