Passíusálmar í útvarpi
Lestur Passíusálma í útvarpi er hafinn. Sumir segja það vera merki um að vorið sé á næsta leiti. Sú hugsun yljar mörgum um hjartarætur þegar naprir vindar blási úti og febrúarmánuður er meira að segja einum degi lengri en venjulega.
En fastan er gengið í garð og þá er lestur Passíusálmanna ómissandi þáttur hennar að mati margra - í raun trúar- og menningarviðburður sem verður seint vikið til hliðar.
Passíusálmarnir voru lesnir fyrst í útvarpi lýðveldisárið 1944. Fyrstur til að lesa var sr. Sigurbjörn Einarsson, biskup. Sjá vef um séra Hallgrím Pétursson hér.
Nú á því herrans ári 2020 eru Passíusálmarnir lesnir af Sigurði Nordal. Hann var virtur maður, fræðimaður og skáld. Prófessor og sendiherra. Góður upplesari – en leitast hefur verið við að fá sem besta upplesara til að lesa þetta öndvegis trúar- og bókmenntaverk. Fólk með snilldarraddir og tilfinningu fyrir hrynjandi tungumálsins.
Sigurður Nordal fæddist árið 1888 og lést árið 1974.
Nú kann einhver að spyrja - eins og kirkjan.is reyndar heyrði á förnum vegi samfélagsmiðlanna fyrir nokkru: Er ekki hægt að fá einhvern sem er lifandi til að lesa sálmana? – og með fullri virðingu fyrir hinum ágætu upplesurum fyrri tíðar. Og hvað með konurnar – hvaða konur hafa lesið Passíusálmana í útvarpinu?
Kirkjan.is leitaði upplýsinga hjá RÚV um málið. Þröstur Helgason, dagskrárstjóri, varð fyrir svörum:
„Við eigum mikið safn af þekktum röddum karla og kvenna sem lesa sálmana.
Okkur þykir mjög gaman að láta þessar raddir heyrast.
Á næsta ári les Steinunn Jóhannesdóttir sálmana.“
Svo mörg voru þau orð, þökk fyrir segir kirkjan.is, og hvetur lesendur sína til að leggja við hlustir.
hsh
Af vef RÚV - skjáskot
Passíusálmar - 29. útgáfa 1858 - takið eftir verðinu: