21. mars 2020
Kirkjan til fólksins
Strandakirkja
Á tímum samkomubanns kemur kirkjan til fólksins eftir öðrum leiðum en venjulega.
Næstu sunnudaga verða Heimahelgistundir í beinu streymi á: visir.is. kl. 17.00.
Þetta er slóðin.
Hugmyndin er að færa kirkjuna og hennar andlegu rækt heim í stofu: Kirkjan til fólksins.
Á morgun, sunnudaginn 22. mars, verður streymt frá Laugarneskirkju. Heimahelgstundin er um hálftími, helgistund með tónlistarflutningi, bæn og hugleiðingu. Andlegur pakki til að takast á við fordæma - og vonandi líka fordómalausa tíma.
Hittumst í streymi á morgun kl. 17.00, í sunnudagsanda með Laugarneskirkju - heimasíða hennar er hér.
Kirkjan í sókn!