Klukkur klingja víðar en hér
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, mæltist til þess í síðustu viku við presta landsins að þar sem unnt væri að koma því við þá yrði kirkjuklukkum hring tólf á hádegi í þrjár mínútur og bænastund höfð um hönd. Víða hefur það verið gert. Verkefnið heitir: Hádegishljómur í kirkjuklukkum landsins og sameiginleg bænastund hvern dag.
Nú hafa Danir boðað að kirkjuklukkum skuli samhringt kl. 17.00 frá og með deginum í dag og áfram næstu vikur til að minna fólk á Guð og náungann á tíma kórónufaraldursins. Í dag verður samhringt í fyrsta sinn til að minna fólk á boðskap kirkjunnar þar sem þær eru nú lokaðar.
„Eins og sakir standa eru flestir uppteknir við eigin hag og heilsu en þegar ómur klukknanna berst okkur til eyrna erum við öll minnt á að leiða hugann til Guðs og náungans og einkum hinna veiku og þeirra sem hjúkra þeim,“ segir Henrik With-Poulsen, biskup í Ársósarstifti.
Henrik telur að manneskjurnar hafi þörf fyrir einhvers konar ritúal, helgiform, þegar samfélagi þeirra er ógnað og hversdagslegt líf gengur úr skorðum.
Ekki veit kirkjan.is hvort að frændur vorir og frænkur Danir hafi frétt af tilmælum biskups Íslands til prestanna hér en burtséð frá því er þessu tiltæki þeirra samfagnað.
hsh/Kristeligt Dagblad