Græna stúdíóið flýgur áfram
Græna stúdíóið er rétt nýbyrjað og annar þáttur farinn í loftið. Stúdíóið er grænt hlaðvarp þar sem fjallað er um umhverfismálin frá ýmsum hliðum í grænum september á tímabili sköpunarinnar í þjóðkirkjunni.
Það er Einar Karl Haraldsson sem stjórnar umræðum og viðmælendur hans að þessu sinni eru þau sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands og frumkvöðull Hringborðs norðurslóða.
Þau koma víða við en umræðuefnið er fyrst og fremst erindi kirkjunnar og trúarleiðtoga inn á vettvang umhverfis-og loftslagsmála í okkar heimshluta. Og hvernig þau tengsl og nýju verkefni sem skapast hafa við þátttöku þjóðkirkjunnar í Hringborði norðursins hafa haft áhrif á kirkjuna.
Hlustendur verða ekki fyrir vonbrigðum. Þátturinn er hinn hressilegasti og ekkert gefið eftir.
ekh/hsh
Sr. Agnes, Einar Karl, og dr. Ólafur Ragnar