Málin þokast
Frumvarp til þjóðkirkjulaga er á málaskrá ríkisstjórnarinnar sem lögð var fram á þingsetningardegi. Það er mál númer 22 hjá dómsmálaráðherra og verður að öllum líkindum afgreitt í desember.
Enda þótt málið sé á málaskrá ríkisstjórnarinnar þá er ekki enn búið að leggja það fram að sögn starfsmanns Alþingis sem kirkjan.is hafði samband við í gær. En málið má finna í Samráðsgátt.
Tillaga til þingsályktunar um frumvarp til laga um þjóðkirkjuna var samþykkt samhljóða af öllum nefndum kirkjuþings. Á fundi kirkjuþings í september var málið samþykkt samljóða.
Um er að ræða frumvarp til laga um þjóðkirkjuna (heildarlög).
Samþykki Alþingi frumvarpið þá falla úr gildi við gildistöku hinna nýju laga lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, með síðari breytingum.
Þessi mál voru lögð fram á Alþingi 1. október s.l.
Svo er þetta ritað í málskrá ríkisstjórnarinnar (mál dómsmálaráðherra) og áttar kirkjan.is sig ekki á fyrirsögninni, hefði haldið að þarna ætti að standa: Frumvarp til þjóðkirkjulaga eða: Frumvarp til laga um þjóðkirkjuna - sem er heiti frumvarpsins. Þau sem vita betur geta sent skýringar á: kirkjan@kirkjan.is
Í Samráðsgáttinni er málið hins vegar skráð svo:
hsh