7. nóvember 2020
Kirkjuþingsfundur
Bjalla kirkjuþings - gefin 1985
Klukkan 9.00 hefst 7di fundur kirkjuþings 2020.
Eingöngu er um hljóðstreymi að ræða frá kirkjuþingsfundinum vegna þess að myndstreymi hentar ekki fyrir Zoom.
Þetta er sögulegur þingfundur þar sem stuðst verður eingöngu við fjarfundabúnað sem kallast Zoom og hefur víða verið notaður síðustu mánuði vegna kórónuveirufaraldursins. Fróðlegt verður að sjá hvernig til tekst.
Fundum kirkjuþings verður stjórnað úr höfuðstöðvum þjóðkirkjunnar í Katrínartúni 4 en þar verða stödd forseti kirkjuþings ásamt fyrsta varaforseta, sem og formenn nefnda, ásamt starfsmönnum þingsins.
Forseti kirkjuþings er Drífa Hjartardóttir.
Dagskrá 7. fundar kirkjuþings - kl. 9.00, laugardaginn 7. nóvember 2020.pdf
hsh