12. janúar 2021
Breyttar reglur
Merki (innsigli) biskupsembættisins - sr. Karl Sigurbjörnsson teiknaði - mynd: hsh
Starfandi biskup Íslands, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sendi í dag bréf til presta, djákna, organista, sóknarnefnda og útfararstjóra, vegna breyttra sóttvarnarreglna.
Á morgun tekur gildi ný reglugerð og segir sr. Solveig Lára að stóru fréttirnar í henni séu þær að allt 100 manns mega vera við útför. Jafnframt ítrekar hún að allra sóttvarnarreglna verði gætt sem fyrr.
Landlæknisembættið staðfesti á dögunum að kirkjulegt starf með börnum á leik- og grunnskólaaldri megi hefjast með takmörkunum sem reglugerð frá 21. desember s.l. setur.
Úr 5. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar
Sviðslistir, kórastarf, bíósýningar sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 50 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Andlitsgrímur skulu notaðar þegar því verður við komið nema þegar listflutningur fer fram. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun....

hsh