Kirkju breytt
Eins og kunnugt er standa Bretar illa í baráttunni við kórónuveiruna og hafa þurft að grípa til harðra aðgerða.
Bólusetning gegn veirunni er hafin þar í landi eins og svo víða.
Húsnæði til bólusetningar þarf að vera rúmgott og hafa margs konar hús verið nýtt til þessa.
Hin glæsilega og sögufræga dómkirkja í Salisbury í Wiltshire hefur nú verið breytt um stundarsakir í bólusetningarmiðstöð. Presturinn þar er í skýjunum og segir að enginn geti fengið fegurra umhverfi til bólusetningar en þau sem koma í Salisbury-dómkirkjuna. Meðan fólkið bíður í röð er leikið á orgel kirkjunnar. Um þetta má lesa nánar í The Telegraph og horfa á myndband sem fylgir fréttinni - og hér fyrir neðan.
Á þriðja þúsund bólusetningamiðstöðva verða í Bretlandi þegar bólusetning verður komin á fullt skrið.
Hver veit nema einhverjar kirkjur hér verði nýttar í þessu skyni þegar til fjöldabólusetningar kemur.
The Telegraph og blaðútgáfa The Sunday Telegraph / hsh