Kirkjan fer af stað
Það verða á vissan hátt tímamót í kirkjustarfi nú um helgina.
Kirkjan þokast smám saman úr netheimum og yfir í raunheima. Engu að síður munu kirkjur halda áfram að streyma efni og eru lesendur hvattir til að gefa því gaum.
Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tók gildi síðastliðinn mánudag, 8. febrúar og gildistími hennar nær til 3. mars.
Messuauglýsingadálkur Morgunblaðsins á laugardögum hefur verið ögn rýr síðustu mánuði en tútnaði heldur betur út í laugardagblaðinu 13. febrúar. Sá dálkur segir að sjálfsögðu ekki allt því að ekki auglýsa allar kirkjur þar heldur notast þær við aðrar leiðir.
Það þarf ekki að taka það fram en að sjálfsögðu verður allra sóttvarnareglna gætt mjög svo vel sem áður. Ekki má gleyma því að enda þótt ríkislögreglustjóri hafi fært nýverið almannavarnastig úr neyðarstigi, sem lýst var í október í fyrra vegna þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins, niður á hættustig þá gilda auðvitað opinberar sóttvarnaráðstafanir áfram.
hsh
Eins og sjá má tekur kirkjan kipp í auglýsingadálkinum sem minnst er á í fréttinni (skjáskot)