Bænastarf kvenna
Alþjóðlegur bænadagur kvenna verður haldinn næstkomandi föstudag 19. mars í Háteigskirkju og hefst dagskráin kl. 18.00.
Það er undirbúningshópur Bænadags kvenna sem hefur haft veg og vanda af dagskránni. Í hópnum eru nokkrar konur úr hverju kristnu trúfélagi sem taka þátt í verkefninu en þau eru svo dæmi séu tekin þjóðkirkjan, Hvítasunnusöfnuðurinn, Óháði söfnuðurinn, Kaþólska kirkjan, Fríkirkjurnar í Reykjavík og Hafnarfirði og Hjálpræðisherinn. Þessar konur funda, skipta með sér verkum í kringum bænadaginn.
Kvennakórinn Ljósbrot syngur í bænastundinni undir stjórn Keith Reed.
Það eru konur úr undirbúningshópnum sem flytja frásögur kvennanna frá Vanúatú í bænastundinni.
Fé verður safnað með rafrænum hætti, gefið verður upp reikningsnúmer hjá samtökum um Bænadaginn. Séð verður til þess að féð komist í hendur kvennanna í Vanúatú.
Á Feisbókarsíðu Alþjóðabænadags kvenna stendur að dagurinn sé haldinn fyrsta föstudag í mars ár hvert í yfir 170 löndum. Nú er hann haldinn þriðja föstudag í mars og er það vegna kórónuveirufaraldursins. En samkomur verða um allt land!
Eyríki í Suður-Kyrrahafi með tæplega þrjú hundruð þúsund íbúum. Rúmlega 80% íbúa Vanúatú eru kristinnar trúar. Eyjarnar voru nýlendur Frakka og Englendinga og fengu sjálfstæði 1980.