Vísitasía í myndum
Seinni dagur vísitasíu biskups Íslands, sr. Agnesar M. Sigurðardóttur, í Stykkishólmsprestakalli fór fram þriðjudaginn 1. júní s.l.
Í för með biskupi voru sr. Þorvaldur Víðisson, biskupsritari, sr. Gunnar Eiríkur Hauksson, sóknarprestur og prófasturinn sr. Þorbjörn Hlynur Árnason.
Leikskólinn í Stykkishólmi var heimsóttur og tekið var vel á móti gestunum. Spjallað var við stjórnendur og börn.
Leikskólinn hefur gert umhverfissáttmála
Sigrún Þórsteinsdóttir, leikskólastjóri, ræðir við biskup
Helgafellskirkja var skoðuð. Kirkjan var smíðuð 1903 og hefur verið endurnýjuð að hluta. Hún er stórt timburhús með forkirkju og strýtuturni. Kirkjan er friðuð.
Í kirkjugarðinum er minningarmark um hinn kunna aflraunamann, Gunnar Salómonsson. Norðan við kirkjugarðinn er talið að Guðrúnar Ósvífursdóttur hvíli.
Helgafellssókn er fámenn sókn.
Helgafellskirkja er myndarlegt guðshús
Gömul altaristafla í Helgafellskirkju var gefin kirkjunni 1701 - er á sönglofti
Á sönglofti Helgafellskirkju er þessi bjalla frá 1547 með latneskri áletrun sem hljóðar svo á íslensku: Gef þú Drottinn frið á vorum dögum
Í Helgafellskirkjugarði er þetta minningarmark um þau sem urðu farsóttum að bráð fyrr á öldum
Steinnin er fallega lábarinn fjörusteinn
Þá var haldið að Narfeyrarkirkju á Skógarströnd. Hún var vígð 1899, tvær fyrri kirkjur á undan fuku af grunni. Kirkjan hvílir á steinhlöðnum sökkli sem er styrktur á suðurhlið með steinsteypu svo hún fjúki ekki. Kirkjan er friðuð. Narfeyrarsókn er fámenn sókn. Hér má heyra í klukkum kirkjunnar.
Narfeyrarkirkja
Í Narfeyrarkirkju - frá vinstri sr. Gunnar Eiríkur, Sigurður Hreiðarsson, formaður sóknarnefndar, sr. Agnes, Kristín Teitsdóttir og sr. Þorbjörn Hlynur
Breiðabólsstaðarkirkja á Skógarströnd var vígð 1973. Þar hafði áður staðið kirkja sem brann til grunna tveimur árum áður. Breiðabólsstaðarsókn er einnig fámenn. Hér má heyra í klukkum kirkjunnar.
Breiðabólsstaðarkirkja á Skógarströnd
Í Breiðabólsstaðarkirkju - frá vinstri: Jón Zimsen, Jóel H. Jónasson, formaður sóknarnefndur, sr. Þorbjörn Hlynur, sr. Agnes og sr. Gunnar Eiríkur - kirkjubækur skoðaðar af athygli
Hefur dugað vel og lengi
Skrifa þarf í ýmsar bækur og votta þær - hér má rekja söguna allt til ársins 1917
Vísitasíunni verður svo framhaldið síðar og þá mun meðal annars Flateyrjarkirkja verða sótt heim.
hsh
Myndir: Þorvaldur Víðisson