Aukakirkjuþingi 2021 frestað
Í gærkvöldi frestaði Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, aukakirkjuþingi 2021, til 27. ágúst n.k.
Fundarstörf hófust kl. 13.00 í gær og lauk um 20.30.
Nýgerður kjarasamningur milli Prestafélags Íslands og kjaranefndar þjóðkirkjunnar var lagður fyrir kirkjuþing og samþykktur.
Þá var samþykkt tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um starfskostnað vegna prestsþjónustu og prófastsstarfa.
Samþykkt var að nýráðningar hjá Þjóðkirkjunni-Biskupsstofu skyldu stöðvaðar timabundið eða til 1. nóvember n.k., og er það gert í ljósi fjárhagsstöðunnar.
Einnig var samþykkt að forseti kirkjuþings og formaður fjárhagsnefndar skyldu sitja fundi kirkjuráðs þegar fjármál væru til umræðu.
Á aukakirkjuþinginu kynnti dr. Bjarni Snæbjörn Jónsson vinnu í kringum stefnumótun þjóðkirkjunnar.
Kynningu á nýsamþykktun þjóðkirkjulögum var frestað fram í ágúst þegar aukakirkjuþing kemur aftur saman. Þá verður og farið í stefnumótunarvinnu.
hsh