27. júní 2021
Áfangi í höfn
Frá athöfninn í Dómkirkjunni - sjá nöfn í fréttinni. Mynd: Gyða Marín Bjarnadóttir
Síðastliðinn mánudag, 21. júní, var útskriftarathöfn nema úr starfsþjálfun þjóðkirkjunnar. Skilyrði prestsefna til að geta útskrifast er að hafa lokið mag. theol.-prófi og djáknaefna að hafa lokið BA-prófi eða viðbótar-diplómanámi.
Starfsþjálfun prests- og djáknaefna er í umsjón þjóðkirkjunnar.
Útskrift úr starfsþjálfun er mikilvægur áfangi og tímamót. Þau sem útskrifast munu mörg hver starfa fyrir þjóðkirkjuna í framtíðinni.
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ávarpaði prests- og djáknaefni sem útskrifuðust og afhenti þeim skírteini sem vottar að þau hafi starfsgengi í kirkjunni. Að lokinni afhöfn var hinum útskrifuðu boði í biskupsgarð í léttan hádegisverð.
Þau útskrifuðust
Fremri röð frá vinstri: Hafdís Davíðsdóttir, prestsefni, Helga Bragadóttir, prestsefni, Guðbjörg Hulda Einarsdóttir, djáknaefni, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, Heiða Björg Gústafsdóttir, djáknaefni, og Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni. Aftari röð frá vinstri: Árni Þór Þórsson, prestsefni, Ívar Valbergsson, djáknaefni, Kristján Ágúst Kjartansson, prestsefni, sr. Þorvaldur Víðisson, biskupsritari. Á myndina vantar prestsefnin Gunnbjörgu Óladóttur, Hjördísi Perlu Rafnsdóttur, Stefaníu Bergdóttur og sr. Margréti Lilju Vilmundardóttur, sem vígðist fyrir nokkru.

Sjá hér þessu tengt.
hsh
Biskup talar til útskriftarnema