Stutt málþing
Laugardaginn 17. júlí verður haldið stutt málþing í Skálholti á Skálholtshátíð í tilefni þess að 30. júní s.l. voru 110 ár liðin frá fæðingu dr. Sigurbjörns Einarssonar, biskups. Það er Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar, sem gengst fyrir málþinginu. Yfirskrift málþingsins er sótt í titil á hirðisbréfi hans sem kom út 1960 og er Ljós yfir land.
Mikið verður um að vera í Skálholti enda Skálholtshátíð haldin hátíðleg um helgina.
Sr. Sigurbjörn fæddist 30. júní 1911 á Efri-Steinsmýri í Meðallandi í Vestur-Skaftafellssýslu og lést í Reykjavík 28. ágúst 2008. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1938 og var um tíma prestur á Snæfellsnesi. Síðar var hann kjörinn prestur í Hallgrímsprestakall í Reykjavík. Þegar hann var kjörinn biskup var hann prófessor vð guðfræðideild háskólans. Hann var vígður til biskups 1959 og gegndi því embætti til ársins 1981. Sr. Sigurbjörn var kjörinn heiðursdoktor í guðfræði við Háskóla Íslands 1961 og Háskólann í Winnipeg 1975. Kona hans var Magnea Þorkelsdóttir (1911-2006) og eignuðust þau átta börn.
Málþingið hefst kl. 10. 00 að morgni og lýkur um hádegisbil með hádegisverði.
Þau flytja stutt og hniðmiðuð erindi á þinginu:
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson
Dr. Magnús Þorkell Bernharðsson
Sr. Kristjáni Björnsson, vígslubiskup
Sr. Karl Sigurbjörnsson, biskup, mun flytja ávarp.
Bogi Ágústsson, fréttamaður og formaður Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar, stýrir málþinginu.
Hægt er að skrá sig til málþingsins á heimasíðu Skálholts og þar er einnig hægt að sjá dagskrá Skálholtshátíðar.
hsh
Bókamerki dr. Sigurbjörns biskups