Kirkja í Grímsey mun rísa
Það hefur ekki farið fram hjá landsmönnum að Miðgarðakirkja í Grímsey brann síðastliðna nótt til kaldra grunna. Elds varð vart um miðnætti og þegar komið var á staðinn varð strax ljóst að engum vörnum varð við komið.
Kirkjan var Grímseyingum einkar kær og byggðin nyrsta er harmi slegin. Miðgarðakirkja var byggð 1867 og endurbætt síðar í tvígang, hún stækkuð 1932 og turn settur á. Kirkjan átti marga góða gripi. Skírnarfontur var til dæmis útskorinn af Einari Einarssyni 1958, þá var altaristaflan eftirmynd af kvöldmáltíðarmynd da Vincis, máluð af Arngrími Gíslasyni, málara, 1879. Ljósakrónur, gamlar, voru frá seinni hluta 19du aldar og önnur klukknanna frá seinni hluta 18du aldar. Marga aðra góða gripi átti kirkjan.
Miðgarðakirkju var þjónað frá Dalvíkurprestakalli.
Af þessu tilefni hefur biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, skrifað eftirfarandi:
Nú er ákvörðun um enduruppbyggingu í höndum sóknarnefndar og íbúa Grímseyjar. Ég mun styðja þeirra ákvörðun. Guði er enginn hlutur um megn.
hsh
Kirkjan brann gjörsamlega til grunna - mynd: Svafar Gylfason/mbl.is
Miðgarðakirkja var fögur og Grímseyingum þótti afar vænt um hana og hún eyjarprýði - mynd: Friðþjófur Helgason