Kirkjuþing kemur saman
Forseti kirkjuþings, Drífa Hjartardóttir, hefur boðað til framhaldsfundar aukakirkjuþings 2021, mánudaginn 4. október kl. 16.00. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Biskupsstofu að Katrínartúni 4, Reykjavík. Kirkjuþingsfulltrúar geta líka tekið þátt í þingstörfum gegnum fjarfundabúnað ef þeir kjósa svo.
Tvö mál eru á dagskrá:
Mál nr. 7: Breytingartillaga og nefndarálit við tillögu til þingsályktunar um stjórnskipan kirkjustjórnarinnar, flutt af allsherjarnefnd, fjárhagsnefnd og löggjafarnefnd. Afgreiðsla málsins á framhaldsfundi aukakirkjuþings 2021 þann 27. ágúst s.l. var sú að því var vísað til allra fastanefnda kirkjuþings. Nú hafa þær lokið yfirferð sinni yfir málið og það tekið nokkrum breytingum. - Síðari umræða.
Mál nr. 9: Tillaga til þingsályktunar um skipun starfshóps til tillögugerðar um áframhaldandi gildi starfsreglna kirkjuþings. - Fyrri umræða.
Streymt verður frá þinginu.
Reglulegt kirkjuþing 2022 verður svo sett 23. október n.k. Það er hið 62. í röðinni. Vakin er athygli á því að mál kirkjuþingsins eru komin í samráðsgátt og getur hver sem vill sett fram skoðanir sínar um einstök mál.
hsh