Nýr prestur vígður
Það var sólríkur dagur í gær þegar prestsvígsla fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík í gær.
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, vígði Matthildi Bjarnadóttur, mag. theol., til prests. Mun hún þjóna að æskulýðsmálum í Garðasókn og jafnframt Erninum, minningar-og styrktarsjóði.Starf Arnarins snýst meðal annars um börn og unglinga á Íslandi sem hafa orðið fyrir sorg og áföllum. Vídalínskirkja í Garðabæ er bakhjarl hans.
Það sem gerði þessa vígsluathöfn óvenjulega var hversu mörg af þeim sem komu að vígslunni eru náin vígsluþega.
Sr. Matthildur sem vígð var er dóttir sr. Jónu Hrannar Bolladóttur og sr. Bjarna Karlssonar. Tvö móðursystkini hennar voru vígsluvottar, sr. Bolli Pétur Bollason og sr. Hildur Eir Bolladóttir. Þá var sr. Sunna Dóra Möller vígsluvottur en hún er kona sr. Bolla Péturs. Sr. Henning Emil Magnússon, prestur í Garðasókn, var einnig vígsluvottur. Fyrir altari þjónaði svo Dómkirkjupresturinn, sr. Sveinn Valgeirsson.
Því má segja að þetta hafi verið mikil hátíðarstund í fjölskyldunni í gær sem og í kirkjunni.
hsh
Frá prestsvígslunni - yfirlagning handa að hætti postulanna