Falleg friðar- og bænastund
Hún var falleg friðar- og bænastundin í Hallgrímskirkju síðdegis í gær sem kirkjan.is sótti. Alvörufull, látlaus og hátíðleg í senn. Stundin var í umsjón sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar, sóknarprests. Flutti hann í upphafi nokkur orð um stríð og hörmungar þess og von um frið sem býr í brjóstum allra. Lesinn var texti Matteusarguðspjalls um friðflytjendur:
Síðan var fólki boðið að tendra á kerti og setja í kórtröppur.
Einnig stóð fólki til boða að skrifa nokkur orð í bók sem var á litlu borði vinstra megin við kórinn.
Björn Steinar Sólbergsson, organisti, lék í byrjun stundarinnar Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ og í lok hennar Andante úr tríósónötu nr. 4 í e-moll eftir Johann Sebastian Bach.
Logandi útikerti voru fyrir utan kirkjudyr og að styttu Leifs heppna Eiríkssonar. Þá var einnig leikið á klukkuspil kirkjunnar.
Viðbúið er að innrás Rússa í Úkraínu beri á góma í prédikunum sunnudagsins og svo fari að jafnvel fleiri kirkjur en Hallgrímskirkja boði til friðar- og bænastunda vegna hernaðarins.
Í gær mátti lesa á samfélagsmiðlum, Twitter, Instagram og Facebook, hughreystandi orð frá trúarleiðtogum um þessi válegu tíðindi í Evrópu.
Sælir eru friðflytjendur
því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
Matteusarguðspjall 5.9.
hsh