Hjálp send til Úkraínu
Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi hóf neyðarsöfnun í kjölfar innrásar Rússlandshers í Úkraínu og hefur nú sent 15 milljóna króna framlag frá fyrirtækjum, einstaklingum og sóknum þjóðkirkjunnar ásamt 20 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu til verkefna systurstofnana í ACT Alliance á svæðinu.
Nú eru sex vikur liðnar frá því að Rússlandsher hóf innrás í Úkraínu með þeim skelfilegu afleiðingum að nær 1500 almennir borgarar hafa látið lífið, enn fleiri liggja særðir eftir og nær fjórðungur þjóðarinnar, um tíu milljónir íbúa, hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín. Af þeim hafa yfir 4,3 milljónir íbúa flúið yfir landamærin til nágrannaríkja og yfir 600 íbúar Úkraínu, flest konur og börn, hafa nú sótt um vernd hér á Íslandi.
Systurstofnanir Hjálparstarfs kirkjunnar í Alþjóðlegu Hjálparstarfi kirkna - ACT Alliance, hafa starfað í Úkraínu og í nágrannalöndum um langt skeið. Um leið og innrásin var gerð hófu þær að veita fólkinu aðstoð, bæði í landinu sjálfu og flóttafólki í nágrannalöndunum í samstarfi við stofnanir Sameinuðu þjóðanna og önnur hjálparsamtök á svæðinu.
Það er mikið verk að samhæfa faglegt hjálparstarf í ringulreið og skipulagning áframhaldandi hjálparstarfs fer fram samhliða því sem lífsbjargandi aðstoð er veitt. ACT Alliance hefur sent út neyðarkall um fjárstuðning við viðamikið hjálparstarf sem framundan er bæði í Úkraínu og í nágrannaríkjunum Ungverjalandi, Rúmeníu, Póllandi og Slóvakíu.
Hjálparstarf kirkjunnar heldur áfram neyðarsöfnun og hefur nú sent fólki á aldrinum 30 – 80 ára 2.400 króna valgreiðslu í heimabankann.
Fréttatilkynning/hsh