Fagnaðarfundir
Presta- og djáknastefna var sett í gær af biskupi Íslands, sr. Agnesi M. Sigurðardóttur, í Hvammstangakirkju.
Það voru sannarlega fagnaðarfundir þegar prestar og djáknar hittust á Hvammstanga enda í fyrsta skipti í tvö ár sem öll presta- og djáknastéttin hittist á fundi. Árið 2020 var engin presta- og djáknastefna haldin vegna kórónuveirufaraldursins. Í fyrra var presta- og djáknastefna með því sniði að að biskup fundaði með prestum og djáknum í hverju og einu prófastsdæmi út af fyrir sig. Hluti af stefnunni var rafrænn fundur. Það var sannarlega sögulegur viðburður í fyrra þegar presta- og djáknastefnan var sett með rafrænum hætti. En nú var allt sem fyrrum og prestar og djáknar með bros á vör - fagnaðarfundir vina og gamalla skólafélaga.
Presta- og djáknastefna er haldin einu sinni á ári.
Aðalefni stefnunnar er að þessu sinni umfjöllun um handbók kirkjunnar. Sú handbók sem nú er í notkun er frá árinu 1981 og búið er að gera drög að nýrri. Þá verður fjallað um sjálfsmynd hins vígða þjóns.
Presta- og djáknastefna er haldin á Hótel Laugarbakka í Miðfirði. Henni verður slitið á morgun við guðsþjónustu í Melstaðarkirkju og þar mun fráfarandi sóknarprestur, sr. Guðni Þór Ólafsson, prédika.
hsh
Gengið til kirkju í prósessíu
Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, og sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands
Að lokinni setningu stefnunnar, sr. Agnes M. Sigurðardóttir og sr. Magnús Magnússon