29. apríl 2022
Kynning á frambjóðendum
Fundarsalur kirkjuþings í Katrínartúni - hverjir munu sitja þarna á næsta kirkjuþingi? - Mynd: hsh
Kjörskrá hefur verið lögð fram. Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en þremur sólarhringum áður en kosning hefst.Frambjóðendur kynna sig
Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar, og þar með talið fjárstjórnarvald, nema lög segi annað til um það.
Svo sem kunnugt er verður kosið nýtt kirkjuþing dagana 12. -17. maí næstkomandi. Það er kirkjuþing 2022-2026 og kemur saman í haust.
Alls eru kosnir 29 aðalfulltrúar og svo varamenn þeirra. Kosning er rafræn og kosið er til fjögurra ára í senn.Kjörskrá hefur verið lögð fram. Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en þremur sólarhringum áður en kosning hefst.
Frambjóðendur kynna sig
Frambjóðendum gefst kostur á að kynna sig á heimasíðu þjóðkirkjunnar, segja frá sjálfum sér og þeim málum er brenna á þeim. Sumir þeirra hafa nú þegar sent frá sér kynningarbréf og það má finna undir mynd af viðkomandi á heimasíðunni.
Kjördæmi vígðra eru þrjú og kjördæmi leikmanna níu.
hsh