Borgarprestakall laust

12. maí 2022

Borgarprestakall laust

Kirkjan á Borg á Mýrum - mynd: Sigurður Ægisson

Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu í Borgarprestakall, Vesturlandsprófastsdæmi. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. október 2022.

Sjá auglýsingu um starfið í heild sinni hér og þarfagreiningu.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 4/2021 og starfsreglna um presta  nr. 1011/2011.

Borgarprestakall
Borgarprestakall er í Vesturlandsprófastsdæmi og nær nú yfir fimm sóknir á Mýrum.

Prestakallið er í Borgarbyggð. Prestssetur er á Borg. Prestakallið nær yfir hluta Borgarhrepps, Borgarnes, Álftaneshrepp og hluta Hraunhrepps, sem nú tilheyra Borgarbyggð.

Í prestakallinu eru fimm sóknarkirkjur: Álftártungukirkja, Akrakirkja, Álftaneskirkja, Borgarkirkja og Borgarneskirkja.

Samkvæmt þjóðskrá 1. desember 2021 voru skráðir íbúar í Borgarprestakalli 2363 talsins. Þar af voru 1691 skráðir í Þjóðkirkjuna og 1352 gjaldendur (16 ára og eldri).

Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.

Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol./cand.theol.- prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – Biskupsstofu.

Fyrirvari
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Fráfarandi sóknarprestur, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins.

Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 26. maí 2022.

Sækja ber rafrænt um starfið á hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.

Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti.  Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar. Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.

hsh


  • Frétt

  • Samfélag

  • Starf

  • Umsókn

  • Biskup

hateigskirkja.jpg - mynd

Samverustund syrgjenda á aðventunni

13. nóv. 2024
Árleg samverustund syrgjenda fer fram 28. nóvember n.k. kl 20:00 í Háteigskirkju.
kirkjanisaugl.jpg - mynd

Biskup Íslands með skrifstofu og opna viðtalstíma á Suðurlandi

12. nóv. 2024
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, ásamt biskupsritara verða með skrifstofu á Suðurlandi í lok vikunnar og komandi helgi. Boðið verður upp á viðtalstíma og opna fundi.
Heimspekinemar í Grensáskirkju ásamt presti og kennara

Nemendur sóttu messu í tengslum við heimspekiáfanga

08. nóv. 2024
...samstarf Verslunarskólans og Fossvogsprestakalls