Tilnefning til vígslubiskups á Hólum
Svo sem kunnugt er upplýsti sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, að hún myndi láta af störfum 1. september nk.
Nú er farið af stað tilnefningarferli samkvæmt starfsreglum nr. 9/2021-2022 um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa.
Tilnefning hefst kl. 12.00 á hádegi í dag og lýkur á hádegi 24. maí nk. Ferlið stendur yfir i fimm sólarhringa.
Frestur til að gera athugasemdir við kjörskrána er liðinn en það þarf að gerast fimm sólarhringum áður en tilnefningar hefjast.
Tilnefningin skal vera rafræn og vera lokið a.m.k. fjórum vikum áður en kosning vígslubiskups hefst.
Hverjir hafa rétt til að tilnefna?
Í áðurnefndum starfsreglum kemur fram hverjir hafa rétt til að tilnefna vígslubiskupsefni:
Á vefsvæði þjóðkirkjunnar skal svo fljótt sem verða má, eftir að niðurstaða tilnefninga er ljós, tilkynna um þá sem verða í kjöri auk þeirra tveggja sem næstir komu að tilnefningu.
Tilnefna til embættis vígslubiskups að Hólum.
hsh