Krýsuvíkurkirkja vígð
Sunnudaginn 5. júní á hvítasunnudag kl. 14. 00 verður nýsmíðuð Krýsuvíkurkirkja vígð.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson, fyrrum vígslubiskup í Skálholti, mun vígja kirkjuna. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur Kjalarnessprófastsdæmis, sr. sr. Gunnþór Þ. Ingason, sem hafði umsjá með fyrri Krýsuvíkurkirkju sem helgidómi og sr. Jónína Ólafsdóttir, sóknarprestur Hafnarfjarðarkirkju, þjóna að vígslunni. Eyjólfur Eyjólfsson og Þóra Björnsdóttir sjá um tónlistarflutning í athöfninni.
Helgihald í Krýsuvíkurkirkju verður sem fyrr í höndum presta Hafnarfjarðarprestakalls.
Vinafélag Krýsuvíkurkirkju hefur staðið fyrir byggingu kirkjunnar en öll smíði var á vegum Iðnskólans í Hafnarfirði, síðar Tækniskólans og jafnframt Þjóðminjasafns Íslands.
Kirkjan.is fjallaði fyrir rúmum tveimur um endurbyggingu Krýsuvíkurkirkju sem lesa má hér.
Það er því táknrænt að vígsla nýju kirkjunnar, sem er nákvæm eftirmynd þeirrar sem byggð var 1857, eigi sér stað á hvítasunnu.
Krýsuvíkurkirkja rúmar ekki nema 40 manns í sæti og þar af leiðandi verða eingöngu þau sem hafa hlutverki að gegna í vígslumessunni auk náinna velunnara kirkjunnar innan dyra. Öllum sem vilja gefst þó kostur á því að fylgjast með vígslumessunni utan dyra, því að hátölurum verður komið þar fyrir, og geta líka gengið inn í kirkjuna undir lok vígslunnar og neytt þar helgrar kærleiksmáltíðar og tekið þannig virkan þátt í vígslumessunni.
Eftir vígsluna verður boðið til kirkjukaffis í Sveinshúsi í Krýsuvík.
Streymt verður frá kirkjuvígslunni á slóðinni: https://youtu.be/9VJpA-1TUYY
Hægt verður jafnframt að fylgjast með steymisútsendingu frá vígslumessunni á stóru tjaldi í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, og þar verður boðið upp á kirkjukaffi.
Strandberg verður opnað vegna útsendingarinnar kl. 13.30.
hsh