Söngur við hafið
Sumartónleikarnir í Hvalsneskirkju hafa verð ágætlega sóttir enda dagskráin vönduð og listamennirnir sem koma fram eru í fremstu röð.
Kirkjan.is ræddi við Bjarni Thor Kristinsson, söngvara, sem mun syngja á tónleikunum ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur, píanóleikara, á morgun, þriðjudaginn 12. júlí, kl. 19.30.
„Ég bý á Íslandi en syng víða, starfa í lausamennsku, og síðustu misserin hef ég verið að syngja í Köln,“ segir Bjarni Thor.
Bjarni Thor er á kunnugum slóðum þegar hann er á Reykjanesinu því hann ólst upp í Garðinum. „Já, og enn nærri gamla varnarliðssvæðinu,“ segir hann.
Hvað varð til þess að piltur úr Garðinum lærði óperusöng?
„Vinur minn sem var í söngtímum dró mig með sér í tíma – og áður en ég vissi af var ég farinn að vinna við söng,“ svarar Bjarni Thor. Hann sótti nám í tónlist bæði hér heima og í Vínarborg. Bjarni Thor er bassasöngvari.
Og hvað á að syngja á morgun?
„Tónleikarnir taka mið af þessu sérstaka umhverfi Miðnesheiðarinnar á sínum tíma og við látum ameríska slagaraa mæta þar íslenskum sönglögum,“ segir Bjarni Thor, „og allt á rólegu nótunum.“
Bjarni Thor ætlar að syngja nokkur lög sem voru vinsæl um miðja síðustu öld og jafnvel fyrr – eins og Ma Curly Headed Baby og Ol' Man River. Og að sjálfsögðu Suðurnesjamenn - einnig: Friður á jörðu. Lagalistann má sjá hér fyrir neðan.
„Við ætlum að reyna að skapa afslappaða stemningu á stuttum tónleikum í þessari fallegu kirkju,“ segir Bjarni Thor í lokin.
Þess má geta að Hvalsneskirkja er eftirsótt kirkja meðal annars fyrir það hve góður hljómburður er í henni.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikarröðinni Sumartónar í Hvalsneskirkju og eru styrktir af Uppbyggingasjóði Suðurnesja og Tónlistarsjóði.
Facebókarsíða Menning á Miðnesheiði.
hsh
Bjarni Thor Kristinsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir
(Skjáskot)