Laufásprestakall laust
Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu í Laufásprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. október 2022.
Sjá auglýsingu um starfið í heild sinni hér og þarfagreiningu.
Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 4/2021 og starfsreglna um presta nr. 1011/2011.
Í Laufásprestakalli eru fimm sóknir, Laufás- og Grenivíkur-, Svalbarðs-, Háls-, Ljósavatns- og Lundarbrekkusóknir. Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.
Fyrirvari
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.
Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol./cand.theol.- prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – Biskupsstofu.
Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021, kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta.
Sr. Jón Ármann Gíslason, prófastur við ráðningarferli þetta, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 866 2253 eða á netfangið jon.armann.gislason@kirkjan.is
Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni - biskupsstofu, s. 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 21. ágúst 2022
Sækja ber rafrænt um starfið hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.
Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.
Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti. Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar. Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.
hsh