List og kirkja: Annað kirkjulistaverk Errós/Ferrós
Fyrir nokkru var sagt frá því á kirkjan.is að listamaðurinn Erró/Ferró (Guðmundur Guðmundsson) ætti mósaíklistaverk í turni Hóladómkirkju. Tilefni umfjöllunarinnar var 90-ára afmæli listamannsins þann 19. júlí 2022. Mósaíkmyndin á Hólum er frá 1957.
Glöggur lesandi vakti athygli á því að Erró/Ferró ætti og listaverk í Patreksfjarðarkirkju.
Kirkjan.is hafði samband við sr. Kristján Arason, sóknarprest í Patreksfjarðarprestakalli, og brást hann vel við að taka myndir af listaverkunum. Hann hafði jafnframt samband við sr. Tómas Guðmundsson, prófast emeritus, og fyrrum prest þeirra Patreksfirðinga (f. 1926). Sr. Tómas kvað að Kvenfélagið Sif hefði gefið myndirnar í tilefni 50 ára vígsluafmælis hennar 1957.
Í bók Aðalstein Ingólfssonar, listfræðings, um listamanninn Erró/Ferró sem ber einfaldlega nafnið: Erró – margfalt líf, og kom út 1991, segir svo um mósaíklistaverkið í Patreksfjarðarkirkju:
Myndirnar má sjá með þessari frétt.
Gaman væri að frétta hvort fleiri verk eftir Erró/Ferró sé að finna í íslenskum kirkjum. Hafið samband við kirkjan@kirkjan.is.
Þess má geta að listamaðurinn Erró notaði listamannsnafnið Ferró í upphafi ferils síns.
hsh