Sr. Bryndís Böðvarsdóttir sett í embætti
Prófastur Austurlandsprófastsdæmis, sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir setti sr. Bryndísi Böðvarsdóttur í starf prests í Austfjarðaprestakalli sunnudaginn 4. september sl. við messu í Norðfjarðarkirkju.
Austfjarðaprestakall varð til við sameiningu Norðfjarðarprestakalls, Eskifjarðarprestakalls, Fáskrúðsfjarðarprestakalls, Heydalaprestakalls og Djúpavogsprestakalls árið 2019
Það var fallegur og sólríkur dagur í Neskaupstað og messan var vel sótt.
Athöfnin var hátíðleg og þjónuðu allir prestar prestakallsins fyrir altari, sóknarpresturinn sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sr. Alfreð Örn Finnsson, Benjamín Böðvarsson og sr. Bryndís Böðvarsdóttir, sem predikaði við athöfnina. Ritningalestra las Steindór Runiberg Haraldsson kirkjuþingsmaður. Sameiginlegur kór Eskifjarðar- og Norðfjarðarsóknar söng og organisti var Norðfirðingurinn Daníel Arason.
Sóknarnefnd Norðfjarðarsóknar bauð í veglegt kaffisamsæti í safnaðarheimilinu að lokinni messu
Bryndís Böðvarsdóttir er fædd 2. nóvember 1972 og uppalin á Akureyri.
Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri af félagsvísinda- og uppeldisbraut.
Sr. Bryndís lauk Ba-námi í guðfræði 2011 og mag. theol.-prófi frá guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands 2019. Að útskrift lokinni starfaði hún sem kirkjuvörður og meðhjálpari við Lágafellssókn.
Sr. Bryndís var vígð til Austfjarðarprestakall 26. júní sl. Starfsskyldur hennar eru mestar við Norðfjarðsókn og þar á eftir Eskifjarðarsókn. Hún hóf störf í júlímánuði á þessu ári.
Sr. Bryndís á þrjú börn, einn son og tvær dætur.
slg