Orgelkrakkahátíð í Reykjavík
Orgelkrakkahátíð verður haldin í Reykjavík dagana 25. september til 1.október.
Hátíðin hefst með fjölskylduguðsþjónustu í Háteigskirkju sunnudaginn 25. september kl. 11:00 þar sem verður orgelkynning og leynigestur kemur í heimsókn.
Dagana á eftir er 2. bekk í öllum grunnskólum Reykjavíkur boðið á sýninguna Lítil saga úr orgelhúsi í þremur mismunandi kirkjum, Fella- og Hólakirkju, Grafarvogskirkju og Hallgrímskirkju.
Lokahátíðin verður svo í Hallgrímskirkju laugardaginn 1. október.
Þá verða tónleikar fyrir alla fjölskylduna kl. 12:00 þar sem leikin verða frægustu orgelverk sögunnar og Eurovision slagarar.
Eftir tónleikana verður boðið upp á orgelkrakkasmiðjur þar sem þátttakendum gefst kostur á að smíða lítið orgel og fá að lokum að prófa að spila á það.
Einnig gefst kostur á að skrá sig á orgelspunasmiðju þar sem tækifæri gefst til að fá að prófa að spila á stóra orgelið.
Engrar kunnáttu er krafist og öll sem áhuga hafa geta verið með!
Allar nánari upplýsingar um dagskrá lokahátíðarinnar og skráningar á smiðjur má finna á facebook.com/orgelkrakkar og á hallgrimskirkja.is
Ókeypis er á alla auglýsta viðburði Orgelkrakkahátíðar í Reykjavík og öll eru hjartanlega velkomin!
Hér er youtube kynningarmyndband um hátíðina:
https://www.youtube.com/watch?v=UZbGA0PXhO8
slg