Andlátsfregn
Sr. Jóhanna Ingibjörg Sigmarsdóttir fyrrum prófastur er látin 78 ára að aldri.
Sr. Jóhanna fæddist þann 25. apríl árið 1944 í Kolholtshelli í Villingaholtshreppi.
Faðir hennar var sr. Sigmar Ingi Torfason sóknarprestur og prófastur á Skjeggjastöðum og kona hans Guðríður Guðmundsdóttir skólastjóri og oddviti á Skjeggjastöðum.
Jóhanna varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1965 og tók kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands árið 1966.
Sr. Jóhanna fór til Svíþjóðar í djáknanám í Samariterhemmet i Uppsölum veturinn 1971-1972.
Eftir það sótti hún nám í guðfræðideild Háskóla Íslands í einn vetur 1972 til 1973. Hún fór aftur í guðfræðideildina árið 1992 og lauk cand. theol. prófi þaðan árið 1998.
Sr. Jóhanna var afar fjölhæf og vann á sínum yngri árum við kennslustörf og var sumarbúðastjóri í Sumarbúðum Þjóðkirkjunnar.
Hún var forstöðukona á Hrafnistu 1975-1999
Sr. Jóhanna var skipaður sóknarprestur í Eiðaprestakalli í Múlaprófastsdæmi frá 1. júní 1999 vígð 24. maí sama ár í Skálholtsdómkirkju.
Þann 1. júní árið 2005 var hún skipaður prófastur í Múlaprófastsdæmi. Siðar varð hún prestur í sameinuðu Egilstaðaprestakalli.
Sr. Jóhanna var gift Kristmundi Magnúsi Skarphéðinssyni og eignuðust þau tvö börn.
Sr. Jóhanna var ákaflega traust kona, ákveðin og hafði sterka kímnigáfu. Hún bar Kirkjumiðstöðina á Eiðum á bænarörmum og sat þar í stjórn um árabil.
slg