Helgistund við útialtarið á Kjalarnesi
Helgistund verður við keltneska útialtarið á Kjalarnesi, í landi Esjubergs, sunnudaginn 9. október kl. 13:00.
Helgistundina leiða sr. María Rut Baldursdóttir, sem nú þjónar sem prestur í Reynivallaprestakalli og sagnfræðingurinn dr. Rosemary Power, sem mun predika.
Í predikun hennar felast hugleiðingar um sólkrossinn, umhverfisspillingu og von.
Keltneskar bænir og sálmar verða sungnir.
Dr. Rosemary Power hefur rannsakað tengsl milli norrænna og gelískra svæða og sérstaklega um sögu eyjarinnar helgu, Iona, þar sem heilagur Kolumkilli stofnaði klaustur og kirkju á 6. öld.
Saga hans var samin hundrað árum seinna, en Book of Kells, sem inniheldur guðspöllin fjögur, var skrifuð um árið 800, honum til heiðurs, á tíma víkingainnrása.
Samkvæmt elstu ritheimildum Íslendinga er talið að vestrænir menn hafi reist fyrstu kirkju landsins á Kjalarnesi um 900 og tileinkað hana heilögum Kolumkilla.
Rosemary Power hefur bæði skrifað í fræðirit og bækur fyrir almenna lesendur.
Nýjasta bók hennar er um Book of Kells, guðspjallabókina, sem skrifuð var á Iona, eyjunni helgu.
Sögufélagið Steini á Kjalarnesi stendur fyrir þessum viðburði.
Til að komast að útialtarinu þarf að beygja út af þjóðveginum í áttina að fjallinu þar sem eru skilti að Kerhólakambi, útialtarinu, Skriðu og Stekk.
slg