Áhugaverð fræðsla á foreldramorgnum
Foreldramorgnar eru mjög vaxandi vaxtarbroddur í kirkjunni.
Nú er meira um fræðslu á þessum morgnum en var hér áður fyrr og er áhugavert að skoða síður safnaðanna, en þar má oft sjá athyglisverða fyrirlesara og umfjöllunarefni.
Það má meðal annars sjá á síðu Bústaðakirkju að Carolina Schinder listmeðferðarfræðingur mun koma á foreldramorgun í kirkjunni á morgun, fimmtudaginn 23. febrúar kl. 10:00.
Hún mun fjalla um skynfæraverkefni í tengslum við tilfinningavinnu sem hún bjó til fyrir leikskólabörn á aldrinum eins árs til þriggja ára.
Carolina fékk nýverið hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir verkefnið sem sjá má hér en þar segir m.a.
"Tilfinningaverkefnið í Hálsaskógi leggur áherslu á að vinna með skynúrvinnslu og skynupplifun yngstu barnanna í leikskólanum.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að verkefnið taki með þessu mið af þörfum þeirra á einstaklingsbundinn hátt.
Öll börn þurfa tækifæri til að njóta styrkleika sinna sem er lykilþáttur í að byggja upp jákvæða sjálfsmynd. Carolina Schinder hefur leitt verkefnið."
Í Bústaðakirkju mun Carolina einnig fjalla um myndræna meðferðarnálgun sem hún sinnir í störfum sínum á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans BUGL, þar sem hún starfar sem listmeðferðarfræðingur.
slg