Laust prestsstarf
Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu í Ólafsfjarðarprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.
Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 39/2022-2023.
Með umsókn sinni staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.
Ólafsfjarðarprestakall
Ólafsfjarðarkirkja er í Ólafsfjarðarprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.
Prestur hefur setið í Ólafsfirði síðan skömmu eftir aldamótin 1900.
Íbúar í prestakallinu voru 785 um síðustu áramót.
Þar af eru 670 í þjóðkirkjunni eða 85,4 %.
Starfinu fylgja viðbótarskyldur við önnur prestaköll í prófastsdæminu, önnur prófastsdæmi, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og önnur kirkjuleg stjórnvöld.
Allar gildar umsóknir fara til valnefndar sem fer yfir allar umsóknir og boðar umsækjendur til viðtals innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, sbr. 8 gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Valnefnd skal ná samstöðu um einn umsækjanda en valið skal byggt á fyrirliggjandi þarfagreiningu og rökstutt á grundvelli hennar.
Í framhaldinu ræður biskup viðkomandi í starfið, að því gefnu að hann telji niðurstöður valnefndar reistar á lögmætum sjónarmiðum.
Valnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 13. gr. framangreindra starfsreglna um ráðningu í prestsstörf.
Umsækjendur skulu gera skriflega grein fyrir starfsferli og starfsreynslu og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
Umsókn ber að fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunnum, svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á.
Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun sem nýtist í starfi.
Til að umsækjandi teljist hæfur í starfið þarf viðkomandi að hafa lokið mag.theol/cand.theol prófi frá Háskóla Íslands ásamt starfsþjálfun hjá Þjóðkirkjunni – Biskupsstofu.
Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn sína og væntingar varðandi þjónustuna.
Þá skulu umsækjendur fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 4. gr. starfsreglnanna.
Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni.
Tengil á eyðublaðið er að finna hér.
Um starfið gilda lög um þjóðkirkjuna nr. 77/2021 kjara- og ráðningarsamningar, siðareglur, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar.
Er einkum vísað til starfsreglna um presta.
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall.
Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla, hljóti þær samþykki kirkjuþings.
Sr. Jón Ármann Gíslason, prófastur, veitir nánari upplýsingar um umfang og eðli starfsins í síma 866-2253 eða á netfangið skinnast@gmail.com.
Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga, t.d. hvað varðar starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, í síma 528 4000, eða á netfangið jona@kirkjan.is eða ragnhilduras@kirkjan.is.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 16. mars 2023.
Sækja ber rafrænt um starfið hér á vefnum og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.
Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.
Vakin er athygli á því að hafi umsækjandi ekki óskað nafnleyndar verður nafn hans sem umsækjanda um starfið birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti.
Hér er að finna eyðublað þar sem umsækjendur geta óskað nafnleyndar.
Verði farið fram á almennar prestskosningar er þó ekki hægt að halda nafnleynd.
Ólafsfjarðarprestakall – þarfagreining
Ólafsfjarðarkirkja er í Ólafsfjarðarprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.
Prestur hefur setið í Ólafsfirði síðan skömmu eftir aldamótin 1900.
Íbúar í prestakallinu voru 785 um síðustu áramót.
Þar af eru 670 í þjóðkirkjunni eða 85,4 %.
Í Ólafsfjarðarprestakalli eru tvær kirkjur, Ólafsfjarðarkirkja og Kvíabekkjarkirkja.
Tveir kirkjugarðar eru í prestakallinu.
Sá sem er notaður í dag er staðsettur í sjálfum bænum, en hinn í sveitinni.
Þá eru tveir fastir starfsmenn Ólafsfjarðarkirkju.
Organisti, sem spilar við ákveðinn fjölda athafna og stjórnar einnig kirkjukórnum, og kirkju- og kirkjugarðsvörður.
Ólafsfjarðarkirkja var byggð árið 1915.
Viðbygging var gerð við norðurhlið kirkjunnar árið 1997, sem tengir kirkjuna safnaðarheimilinu.
Kvíabekkur er bær og kirkjustaður á Ólafsfirði.
Kirkjan, sem nú stendur, var byggð árið 1892.
Ekki hefur verið messað þar í all mörg ár.
Á Ólafsfirði er Grunnskóli Fjallabyggðar, leikskólinn Leikhólar, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Dvalarheimilið Hornbrekka, en þar er einnig Heilsugæsla, Menningarhúsið Tjarnarborg og Tónlistarskólinn á Tröllaskaga.
Öflugt sönglíf hefur verið á Ólafsfirði í árana rás og í dag eru starfræktir nokkrir kórar í Fjallabyggð, má þar nefna Kirkjukór Ólafsfjarðarkirkju, Kirkjukór Siglufjarðarkirkju, Vorboðinn - kór eldri borgara og Karlakór Fjallabyggðar.
Að auki er fjöldinn allur af góðum tónlistarmönnum og söngvurum á svæðinu.
Sóknarnefnd óskar eftir því að í starf sóknarprests verði ráðinn einstaklingur með góða samskiptahæfni, hlýjan perónuleika og samstarfsvilja.
Æskilegt er að viðkomandi hafi góða reynslu af kirkjulegu starfi, hann þarf að geta tengt saman starf barna og æskulýðsstarfs sóknarinar og unnið náið með eldri borgurum.
Sóknarnefndin hefur þann vilja að vinna vel með nýjum sóknarpresti og er opin fyrir nýjum hugmyndum.
slg