Laus staða organista
Þrjár sóknir innan Dalvíkurprestakalls, Dalvíkursókn, Stærri-Árskógssókn og Hríseyjarsókn, óska eftir að ráða organista til starfa frá og með 1. september næstkomandi.
Um er að ræða 65-70% stöðu.
Auk orgelleiks við helgihald, annast viðkomandi kórstjórn í áður töldum sóknum.
Tekið skal fram að kórar starfa saman.
Farið er fram á að umsækjandi hafi lokið prófi í kirkjutónlist frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar, eða sambærilegri stofnun og hafi reynslu í orgelleik og þá ekki síður í kórstjórn.
Leitað er eftir einstaklingi sem er hvetjandi og frjór kórstjóri, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleika í starfi.
Viðkomandi mun starfa náið með kórstjórn, sóknarnefndum og prestum Dalvíkurprestakalls.
Starfskjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og FÍO/organistadeildar FÍH.
Umsóknum, ásamt afritum af prófskírteinum og ferilskrá, skal skila eigi síðar en 14. júní.
Samþykki fyrir öflun upplýsinga þarf einnig að fylgja umsókninni, tengil á eyðublaðið má finna hér.
Að öðru leyti er vísað til starfsreglna um kirkjutónlist.
Umsóknir skal vinsamlegast senda á oddur.bjarni.thorkelsson@kirkjan.is
slg