26. maí 2023
Auglýsing um kosningu vígslubiskups
Kosning vígslubiskups í Skálholtsumdæmi fer fram frá kl. 12:00 hinn 7. júní 2023 til kl. 12:00 hinn 12. júní 2023.
Á kjörskrá eru þau sem uppfylltu skilyrði kosningaréttar hinn 6. apríl 2023, sbr. 6. gr. starfsreglna um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa.
Kosningin er rafræn.
Við atkvæðagreiðslu skal kjósandi nota almenna innskráningarþjónustu, s.s. rafræn skilríki eða Íslykil Þjóðskrár Íslands og skal kjósandi auðkenna sig á fullnægjandi hátt áður en hann greiðir atkvæði.
Kjósandi greiðir atkvæði á þann hátt að hann merkir við nafn þess frambjóðanda sem hann kýs.
Geri hann það ekki, er atkvæði hans ógilt.
Sama gildir um autt atkvæði.
Reykjavík, 26. maí 2023
f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar
Anna M. Karlsdóttir, formaður.
slg