3. júní 2023
Framboðsfundur vegna vígslubiskupskosninga
Skálholtsdómkirkja
Eins og fram hefur komið á kirkjan.is verður kjör til víglubiskups í Skálholtsumdæmi 7.- 12. júní n.k.
Í kjöri eru sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur á Reynivöllum í Kjós, sr. Dagur Fannar Magnússon, sóknarprestur í Skálholti og sr. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholtsumdæmi.
Prestafélag Suðurlands hefur haft frumkvæði að því að fá þau sem í kjöri eru til að kynna sig og málefni sín á svokölluðum framboðsfundi.
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 6. júní kl. 17:00 í safnaðarheimilinu á Hellu.
Á fundinum gefst þeim sem í kjöri eru tækifæri til að kynna sig og sín stefnumál.
Streymt verður frá fundinum en slóðin er hér: https://promynd.is/kirkjan
Upptakan verður aðgengileg fram yfir kosningar.
Allir eru velkomnir á fundinn.
slg