Sumarstarf kirkjunnar í Fossvogsprestakalli
Nú er vetrarstarfi safnaða kirkjunnar að ljúka.
Víða voru síðustu fermingar vorsins í gær á sjómannadaginn, þó einhver börn verði fermd í sumar og í haust.
Víða er sumarstarf safnaðanna með öðru sniði en vetrarstarfið.
Kirkjan.is mun leitast við að greina frá sumarstarfinu sem unnið er í kirkjunni um allt land.
Yfir vertrartímann eru guðsþjónustur í Fossvogsprestakalli að jafnaði kl. 13:00 í Bústaðakirkju og kl. 11:00 í Grensáskirkju.
Nú verður breyting á í Bústaðakirkju því í sumar verða kvöldmessur og einsöngur í hverri viku á sunnudagskvöldum.
Barna- og æskulýðsstarfið, eldri borgarastarfið, foreldramorgnarnir, kirkjuprakkararnir, TTT, æskulýðsfélagið Pony, prjónaklúbburinn, Kvenfélagið, barnakórinn og þannig mætti áfram telja, eru nú komin í sumarfrí.
Kvöldmessurnar hefjast kl. 20:00 og er stefnt að því að hafa andrúmsloftið lágstemmt, en heilagt.
Þetta verða ljúfar stundir með einsöng, hugleiðingu, bænagjörð og öllu því sem hefðbundnar guðsþjónustur skarta.
Í hverri kvöldmessu verður einsöngur og félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju munu syngja.
Kórfélagarnir munu skipta með sér sunnudögunum í sumar og koma fram eitt og eitt, við undirleik Jónasar Þóris organista.
Prestar Fossvogsprestakalls munu flytja hugvekju í kvöldmessunum, en þau eru sr. Eva Björk Valdimarsdóttir, sr. María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir og sr. Þorvaldur Víðisson.
Það er tilvalið að koma við í Bústaðakirkju á sunnudagskvöldi eftir helgardvöl í sumarbústaðnum eða sumarferð um landið áður en ný vinnuvika hefst.
Í Grensáskirkju verður helgihaldið áfram með hefðbundnum hætti og er alla sunnudaga kl. 11:00 f.h.
Fossvogsprestakall býður alla hjartanlega velkomna til helgihaldsins hvort sem er að morgni eða kvöldi.
slg