Hallgrímsdagar á hausti
Kirkjan.is sagði frá því í gær að á morgun föstudaginn 27. október kl. 19:30 verður stofnfundur Hollvinafélags Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Í kjölfar stofnunarinnar verða haldnir Hallgrímsdagar að hausti.
Að sögn Margrétar Bóasdóttur ábúanda í Saurbæ hefst Hallgrímsvakan strax að lokinni stofnuninni eða klukkan 20:00 á föstudagskvöld.
Þá mun dr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín halda erindi sem hann nefnir Landssöfnunin og byggingarsaga kirkjunnar sem ekki var reist.
Þá leikur Laufey Sigurðardóttir partítu í E dúr fyrir einleiksfiðlu eftir J. S. Bach.
Þorsteinn Helgason, prófessor emeritus flytur erindi sem hann nefnir:
Bréfaskóli Hallgríms Péturssonar.
Laugardaginn 28. október kl. 17:00 hefst dagskráin að nýju með kórtónleikum.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju flytur fjölbreytta efnisskrá.
Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson.
Sunnudaginn 29. október kl. 11.00 er hátíðarmessa í Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Prestur verður sr. Þóra Björg Sigurðardóttir prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli og sr. Kristján Valur Ingólfsson, fyrrum vígslubiskup í Skálholti predikar.
Kór Saurbæjarprestakalls hins forna og Margrét Bóasdóttir sópran syngja.
Organisti verður Zsuzsanna Budai.
slg