13. desember 2023
Jólakveðja frá Tónskóla þjóðkirkjunnar
Nemendur Tónskólans ásamt skólastjór
Jólatónleikar Tónskóla þjóðkirkjunnar fóru fram 8. og 9. desember.
Að sögn Guðnýjar Einarsdóttur söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og skólastjóra Tónskóla þjóðkirkjunnar þá voru fyrri tónleikarnir orgeltónleikar.
„Þar komu fram orgelnemendur skólans á öllum aldri og öllum stigum.
Á seinni tónleikunum voru kórstjórnarnemendur Tónskóla þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands í aðalhlutverki í stjórnun og kórsöng.
Nemendur stóðu sig öll með miklum sóma og við þökkum þeim fyrir framlag þeirra um leið og við óskum öllum nemendum, kennurum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári“
segir Guðný Einarsdóttir
slg