15. mars 2024
Tilkynning frá kjörstjórn
Kærufresti vegna tilnefninga til biskupskjörs lauk á hádegi í dag, 15. mars, sbr. 3. mgr. 14. gr. starfsreglna nr. 9/2021-2022 um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa.
Kjörstjórn barst engin kæra.
Þá hafa þau þrjú sem flestar tilnefningar hlutu gefið kost á sér í kjörinu, sbr. 4. mgr. 14. gr. nefndra starfsreglna.
Því tilkynnist hér með að neðangreind verða í kjöri til biskups Íslands:
Sr. Elínborg Sturludóttir
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
Sr. Guðrún Karls Helgudóttir
Eins og áður hefur verið auglýst hefst kosningin kl. 12:00 á hádegi þann 11. apríl 2024 og lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 16. apríl 2024.
slg