Tvö laus herbergi á Löngumýri
Vegna forfalla eru laus tvö tveggja manna herbergi í næsta hóp á Löngumýri, 23. – 28. júní.
Langamýri er fræðslusetur þjóðkirkjunnar.
Það stendur á flatanum neðan við Varmahlíð í Skagafirði.
Þar var áður húsmæðraskóli.
Húsnæðið hentar mjög vel fyrir starfsemi eins og orlofsbúðir fyrir eldra fólk enda er nánast allt á sömu hæð.
Fáein þrep eru niður í setustofuna og tvö herbergjanna eru á efri hæð en annars er allt á einu og sama gólfinu.
Gist er í eins og tveggja manna herbergjum, eitt þriggja manna herbergi er á staðnum.
Salerni eru sameiginleg en eru mjög mörg og nálægt hverju herbergi.
Í rúmgóðum matsalnum er borðað fimm sinnum á dag og í eldhúsinu starfar dásamlegt starfsfólk úr héraðinu.
Innangengt er í kapellu og þar er boðið upp á stundir kvölds og morgna.
Gist er í uppbúnum rúmum og handklæði fylgja.
Sundlaug og heitur pottur eru á staðnum.
Boðið er upp á gönguferð á hverjum degi, einnig létta stólaleikfimi.
Einn daginn er farið í menningarferð um héraðið.
Kvöldvökur, söngur og gleði eru daglegt brauð, svo er oft boðið upp á spil, bingó, púsluspil og aðra skemmtun.
Allar upplýsingar fást í síma 567 4810 milli klukkan 9 og 13.
Reglulega eru settar inn myndir og frásagnir af hverri dvöl á Facebook síðunni: Orlofsbúðir eldri borgara á Löngumýri í Skagafirði og skráning á www.eystra.is
slg