Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?

3. desember 2024

Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?

Á aðventunni er mikið um tónleika í kirkjum um allt land.

Það gefur hugarró í amstri daganna að setjast á kirkjubekk og njóta tónlistar, bæði klassískrar tónlistar og jólatónlistar.

Laugardaginn 7. desember kl. 12:00 verða hádegistónleikar í Hallgrímskirkju sem bera yfirskriftina Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?

Þessi skemmtilegi orðaleikur gefur það í skyn að flutt verði tónlist eftir Bach og við getum tekið okkur hvíld frá kökubakstrinum!

Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel kirkjunnar og Davíð Þór Jónsson á píanó.
´
Í frétt frá Hallgrímskirkju segir:

„Á þessum kyrrðartónleikum í aðdraganda jóla flytja Tómas Guðni Eggertsson organisti og Davíð Þór Jónsson píanisti valda jólasálmforleiki eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750).

Forleikina er að finna í handritinu Orgelbüchlein, eða Lítil orgelbók, sem Felix Mendelssohn lét prenta á fyrri hluta 19. aldar.

Sálmforleikir meistara Bachs verða fluttir á nýstárlegan máta, sem spilafélagarnir tveir hafa þróað á undanförnum árum, og er enn í þróun, þar sem Davíð Þór spinnur á flygil kirkjunnar í kringum forleikina sem Tómas Guðni leikur á Klais-orgelið.

Þá verður registeringum orgelsins einnig breytt miðað við hefðbundinn flutning.

Hvergi er þó hvikað frá virðingu við verkin sjálf og upphaflegt erindi þeirra.

Davíð Þór Jónsson (f. 1978) er meðal fremstu og fjölhæfustu tónlistarmanna landsins, jafnvígur á píanóleik, spuna, tónsmíðar og hljómsveitarstjórn auk þess sem hann leikur á ógrynni hljóðfæra.

Hann hefur leikið á tónlistarhátíðum víða um heim, gert tónlist og hljóðmyndir fyrir fjölda sviðsverka, kvikmyndir, útvarpsverk og sjónvarpsþætti og starfað náið með fjölda listamanna úr ólíkum geirum, má þar nefna náið samstarf hans og Ragnars Kjartanssonar.

Davíð Þór hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og Grímuverðlaunin sem og alþjóðleg verðlaun fyrir kvikmyndatónlistina úr Hross í oss og Kona fer í stríð.

Tómas Guðni Eggertsson (f. 1974) lauk prófi í píanóleik frá Nýja tónlistarskólanum vorið 1996 og hélt í kjölfarið til framhaldsnáms við Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow.

Heimkominn lauk hann einleiksáfanga í orgelleik og kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar.

Hann hefur starfað sem tónlistarkennari, kórstjóri og organisti.

Samstarf við tónlistarmenn á borð við Dimitri Ashkenazy, Ólaf Kjartan Sigurðarson og Svein Dúu Hjörleifsson hefur leitt Tómas Guðna um ýmsar lendur tónlistarinnar, og á síðustu árum hefur samvinnan við Davíð Þór Jónsson stækkað og breikkað sviðið á alla kanta.“


slg


  • Kirkjustarf

  • List og kirkja

  • Menning

  • Tónlist

  • Kirkjustaðir

processed-B35E206B-E00E-4BE7-B644-52F5433144D5.jpg - mynd

Níu hlutu styrk úr tónlistarsjóði kirkjunnar og STEF

23. des. 2024
Verkefnin sem hlutu styrk eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Fjölmargar sterkar umsóknir bárust að þessu sinni sem þykir bera gróskumiklu tónlistarstarfi innan Þjóðkirkjunnar gott vitni.
Vígslubiskup og sóknarpestur ásamt sóknarbarni

Þorláksmessa í Skálholti

23. des. 2024
...kaffibrúsamessa í Þorláksbúð
Altarið í Kirkjuselinu.jpg - mynd

Aðventa í Egilsstaðaprestakalli

23. des. 2024
...fjölbreytt dagská í boði