Hjálpumst að heima og heiman

4. desember 2024

Hjálpumst að heima og heiman

Árleg jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar undir yfirskriftinni „Hjálpumst að heima og heiman“ er hafin og er nú í fullum gangi.

Starfsfólk og sjálfboðaliðar Hjálparstarfs kirkjunnar eru í óða önn að undirbúa sérstaka aðstoð við fólk sem býr við kröpp kjör svo það geti gert sér dagamun yfir hátíðirnar.

Fólk í brýnni þörf fær inneign á greiðslukort fyrir matvöru.

Foreldrar fá auk þess aðstoð svo börnin fái jóla og skógjafir.

Utan Reykjavíkur er aðstoðin veitt í góðri samvinnu við Hjálpræðisherinn, Rauða krossinn, mæðrastyrksnefndir og kirkjusóknir vítt og breitt um landið og með frábærum stuðningi frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum.

Aðstæður fólks í mestum vanda hafa, að mati Hjálparstarfsins, versnað.

Alls fengu fjölskyldur um land allt inneignarkort og fleira í 1.735 skipti fyrir síðustu jól en í 1.783 skipti var sá sami stuðningur veittur fyrir jólin 2022.

Um síðustu jól er því ekki óvarlegt að áætla að um fimm þúsund manns hafi notið aðstoðarinnar.

Bjarni Gíslasona framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar hvetur söfnuði landsins til að minna fólk á að taka þátt í söfnuninni og nýta öll tækifæri sem gefast til að taka þátt í söfnuninni.

Opnað var fyrir umsóknir um jólaaðstoð á netinu 21. nóvember.

Lokað verður fyrir netumsóknir þann 10. desember.

Opnað verður að nýju fyrir almennar umsóknir um neyðaraðstoð á netinu 8. janúar.

Prestar og djáknar í dreifbýli hafa milligöngu um aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar við einstaklinga jafnt sem barnafjölskyldur en á svæðum þar sem aðrar hjálparstofnanir starfa einskorðar Hjálparstarfið aðstoðina við efnalitlar barnafjölskyldur.

Gott samstarf er um jólaaðstoð víðs vegar um landið milli Hjálparstarfs kirkjunnar annars vegar og Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefnda og Rauða krossins hins vegar.

Sjá nánar um starf Hjálparstarf kirkjunnar hér.

 

slg


  • Kærleiksþjónusta

  • Kirkjustarf

  • Samstarf

  • Þjóðkirkjan

  • Hjálparstarf

processed-B35E206B-E00E-4BE7-B644-52F5433144D5.jpg - mynd

Níu hlutu styrk úr tónlistarsjóði kirkjunnar og STEF

23. des. 2024
Verkefnin sem hlutu styrk eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg. Fjölmargar sterkar umsóknir bárust að þessu sinni sem þykir bera gróskumiklu tónlistarstarfi innan Þjóðkirkjunnar gott vitni.
Vígslubiskup og sóknarpestur ásamt sóknarbarni

Þorláksmessa í Skálholti

23. des. 2024
...kaffibrúsamessa í Þorláksbúð
Altarið í Kirkjuselinu.jpg - mynd

Aðventa í Egilsstaðaprestakalli

23. des. 2024
...fjölbreytt dagská í boði